Þrítugasti þáttur er kominn í loftið á allar helstu hlaðvarpsveitur, ekki missa af þessari snilld! Arnór Steinn, Ástrós Hind, Magnús Hrafn og Ingi tókust á að þessu sinni í stúdíó 9A.
Þú finnur Trivíaleikana einnig á Spotify, Apple Podcasts, Vísi, Mbl, Google Podcasts og víðar. Trivíaleikarnir er íslenskt spurningahlaðvarp sem færir pöbbkviss-stemninguna heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Keppninni er skipt upp í mismunandi spurningaflokka þar sem tvö tveggja manna lið keppast um að svara spurningum og safna sem flestum stigum. Hlustaðu á nýjasta þáttinn hér að neðan.
Comments