Já þú last rétt, það er kominn splunkunýr Trivíaleikaþáttur á allar helstu hlaðvarpsveitur! Jón Hlífar, Kristján, Ingi og Heiðdís María tókust á í löðrandi sveittu stúdíó 33 á meðan að okkar allra besti Arnór Steinn brá sér í dómarasætið þar sem Daníel Óli er haldinn út á land yfir sumarið að vinna.
Þú finnur Trivíaleikana einnig á Spotify, Apple Podcasts, Vísi, Mbl, Google Podcasts og víðar. Trivíaleikarnir er íslenskt spurningahlaðvarp sem færir pöbbkviss-stemninguna heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Keppninni er skipt upp í mismunandi spurningaflokka þar sem tvö tveggja manna lið keppast um að svara spurningum og safna sem flestum stigum. Hlustaðu á nýjasta þáttinn hér að neðan.
Comments