Ellefti þáttur Trivíaleikanna er núna kominn í loftið og þá er einnig hlaðvarpið aðgengilegt í fyrsta sinn á hlaðvarpsvef Morgunblaðsins. Í ellefta þætti tókust lið Stefáns Geirs og Kristjáns á við lið Inga og nýliðans Heiðdísar Maríu í hörkuslag.

Þú finnur Trivíaleikana einnig á Spotify, Apple Podcasts, Vísi, Mbl, Google Podcasts og víðar. Trivíaleikarnir er íslenskt spurningahlaðvarp sem færir pöbbkviss-stemninguna heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera, þriðja hvern föstudag. Keppninni er skipt upp í mismunandi spurningaflokka þar sem tvö tveggja manna lið keppast um að svara spurningum og safna sem flestum stigum.
Comments