Tuttugasti og þriðji þáttur Trivíaleikanna var frumfluttur í beinni útsendingu hjá Útvarpi Mosfellsbæ í dag og er nú kominn inn á allar helstu hlaðvarpsveitur. Arnór Steinn og Ástrós Hind tóku á móti Inga og Kristjáni í hörkuþætti þar sem snert var á einu og öðru úr heimabæ hlaðvarpsins. Ekki missa af þessum stórskemmtilega þætti.

Þú finnur Trivíaleikana einnig á Spotify, Apple Podcasts, Vísi, Mbl, Google Podcasts og víðar. Trivíaleikarnir er íslenskt spurningahlaðvarp sem færir pöbbkviss-stemninguna heim til þín, hvar sem þú ert og hvað sem þú ert að gera. Keppninni er skipt upp í mismunandi spurningaflokka þar sem tvö tveggja manna lið keppast um að svara spurningum og safna sem flestum stigum. Hlustaðu á nýjasta þáttinn hér að neðan.
Comments